Það eru ekki nýjar fréttir að lággjaldaflugfélagið Ryanair hirði lítt um þjónustu við viðskiptavini sína en fyrirtækið hefur fengið á baukinn fyrir slíkt í áraraðir án þess að mikið breytist. Eins og sjá má hér að neðan.
Ristjórn Fararheill hefur flogið með írska flugfélaginu nokkrum sinnum og fyrir utan nett óþægindi eins og að geta ekki hallað sætum og fá ofbirtu í augun af þessum skærgula lit sem er ríkjandi um borð hefur aldrei neitt bjátað á. Flug hafa verið á tíma og fargjöldin oftar en ekki hræbilleg og ekki er hægt að fara fram á mikil þægindi fyrir litla peninga.
En lengi ætlar að taka fyrir forsvarsmenn Ryanair að læra lágmarks mannasiði og kurteisi. Hér að neðan má sjá dæmi þess þegar farþegar í vél flugfélagsins frá London til Porto eru beinlínis læstir inni í vélinni í tæpar fjórar klukkustundir án matar og drykkja og það eftir að tafir urðu á fluginu í upphafi. Fólkið var geymt í vélinni þar sem búið var að loka flugstöðinni og það ætlaði flugfélagið sér bara að komast upp með. En þá hugkvæmdist einhverjum að hringja á lögreglu vegna málsins.
Þvílík hneisa og viðbjóðslegt framferði gagnvart manneskjum.








