Fimm stjörnu topphótel með öllu inniföldu í vikutíma í Sharm el Sheikh við Rauðahafið fyrir 153 þúsund krónur á mann miðað við tvo. Spennó ekki satt?
Slíkt er í boði nú með bresku ferðaskrifstofunni Fleetway næstu mánuðina en bæði ferðaskrifstofan sjálf og hótelið sem um ræðir í tilboðinu hafa fengið allra bestu einkunnir hjá lesendum Tripadvisor. Reyndar hefur hótelið, Savoy, verið valið besta hótelið á Sharm um þriggja ára skeið. Þar eru 14 veitingastaðir, 22 barir, barnasvæði, heilsulindir, skautasvell og svo framvegis og svo framvegis.
En það er staðsetningin sem hér er allra best enda skín sólin hér hindrunarlaust 365 daga á ári eða svo og ylvoglt og tært Rauðahafið nálægt til að kæla fólk niður ef svo ber undir.
Í boði eru sjö, tíu og fjórtán nátta ferðir allt þetta ár en lægsta verð á sjö daga ferðum 153 þúsund krónur á mann miðað við tvo á ákveðnum dagsetningum. Við verðið þarf að bæta við flugi til og frá Íslandi til London.
Allt um Sharm el Sheikh hér. Nánar hér um tilboðið.








