Stundum verður að kalla hlutina sínum réttu nöfnum. Og hótelbókunarþjónusta sú sem Stöð 2 kynnir nú villt og galið er með þeim allra verstu sem finnast.

Margauglýst hótelbókunarvél Stöðvar 2 býður heil 2 hótel í Alicante. Skjámynd úr Fréttablaðinu

Margauglýst hótelbókunarvél Stöðvar 2 býður heil 2 hótel í Alicante. Skjámynd úr Fréttablaðinu

Ekki eingöngu fellur bókunarþjónusta Stöðvar 2 alveg í rykið í samkeppni við hótelbókunarvél Fararheill eins og við sýndum fram á um daginn heldur og er ekki hægt að taka hótelbókunarþjónustu sem býður aðeins eitt eða tvö hótel í stórborgum Evrópu alvarlega.

Í Sevilla á Spáni er EITT hótel í boði, í Alicante er boðið upp á heil TVÖ hótel af þeim rúmlega 90 sem þar finnast og eingöngu fimm hótel í boði í Frankfurt þar sem leitarvél Fararheill finnur 227 hótel. Og svo framvegis og svo framvegis.

Afskaplega er leiðinlegt að þykjast vera að gera gott fyrir áskrifendur sína og bjóða svo upp á einhvern herfilegasta kost sem fyrirfinnst í bransanum.

st3

st6

st5

st6