Annaðhvort hafa undirtektir verið fram úr hófi góðar eða sala verið vel undir væntingum. Í öllu falli hefur ferðarisinn Travel Republic í Bretlandi framlengt ágæta janúarútsölu sína á ferðum og ferðalögum fram til 10. febrúar.
Þar er ekki um neina gerviafslætti að ræða heldur allt að helmings afslátt frá hefðbundnu verðlagi og um að gera að fletta og skoða. Ferðaskrifstofan atarna þykir með þeim betri og vinsælli í Bretlandi og fær meðaleinkunnina 9.1 af 10 meðal viðskiptavina.
Finni fólk hagstæð fargjöld með flugi héðan til Bretlands og heim aftur getur meira en vel verið að hægt að sé finna dýrindis sumarleyfisferð án þess að hana þurfi að setja á tólf mánaða Vísa.








