Páskar koma og fara árlega og eru misjafnlega minnistæðir hátíðisdagar. Vilji menn vera vissir um að páskahátíðin 2014 endi ekki í gleymskunnar dá gæti verið hið besta ráð að drífa sig til Norður-Kóreu.
Ferðaskrifstofan Trans-Atlantic á Akureyri bryddar reglulega upp á sérstæðum ferðum fyrir hugsandi fólk og ein ferða þeirra á næstunni er einmitt til þessa merkilega ríkis norðanmegin á Kóreuskaganum.
Fyrir hópnum fara sagnfræðingarnir Árni Hermannsson og Jón Ingvi Kjaran sem báðir hafa áður eytt tíma í þessu merkilega landi og þekkja vel sögu þess líka.
Í heildina tekur ferðin tæpar tvær vikur og af ferðalýsingu má ráða að hér er ekki um hefðbundna páskaferð að ræða.
Verð á mann miðað við tvo saman er 559.965 krónur.








