Fyrir skömmu tilkynnti norska lággjaldaflugfélagið Norwegian um nýja flugleið sína frá Bergen til Keflavíkur en sú leið verður í boði frá og með apríl næstkomandi. Leit á vef þeirra norsku leiðir í ljós að hægt er að fljúga ódýrast báðar leiðir fyrir tæpar sautján þúsund krónur.
Það er allra ódýrasta fargjaldið sem finnst við leit en algengara verð þegar nær dregur sumri er þó kringum tuttugu þúsund krónum en hafa skal í huga að enginn farangur er innifalinn í þeim tölum.
Þó Bergen sé sannarlega nokkurra nátta virði ein og sér þá er ekki síður leiðinlegt að frá Bergen flýgur Norwegian beint til allmargra safaríkra áfangastaða. Til að mynda Barcelóna, Alicante, Kanarí, Tenerife og Malaga svo nokkrir séu nefndir og önnur leiðin til flestra þessara ekki dýrari en fimmtán þúsund krónur næsta sumarið þegar þetta er skrifað eins og sjá má að neðan.
Allt staðir sem vart er komist til í beinu flugi héðan frá Íslandi mikið undir hundrað þúsund krónum svo mögulega er bæði ódýrara og ljúfara að taka pakkann frá Bergen.









