Eins og kunnugir vita hefjast útsölur í Bretlandi strax á jóladag ár hvert og þar eru flugfélögin ekki undanskilin. Flugfélagið Emirates var að birta sérstök jólatilboðsfargjöld sín til hinna og þessara borga heimsins en bóka verður fyrir 14. janúar.

Muscat í Óman hefur þotið upp í vinsældum hin síðari ár

Muscat í Óman hefur þotið upp í vinsældum hin síðari ár

Ekki kemur fram hver afsláttarkjörin eru en Fararheill sýnist að gróflega sé um tíu til tuttugu prósenta afslátt frá venjulegum fargjöldum flugfélagsins.

Til dæmis er komist fram og tilbaka frá London eða Glasgow til Dúbai vel fram á næsta sumar fyrir 69.400 krónur miðað við miðgengi krónu gagnvart pundi. Fyrir þrjú hundruð kall í viðbót er hægt að fljúga til Muscat í Óman og einnig vel fram á næsta sumarið. Múmbai á Indlandi í boði fram og aftur fyrir 72 þúsund krónur og svo má lengi telja.

Hægt er að finna billegri fargjöld en þetta en flugleiðirnar eru langar til Mið-Austurlanda, Asíu, Afríku eða Eyjaálfu og vart hægt að njóta flugs mikið betur en með Emirates.

Öll tilboðin hér.