Þó lítið fari fyrir þá rekur Unnur Guðjónsdóttir enn Kínaklúbb sinn og þvælist reglulega með áhugasama um áhugaverða staði í Kína. Næsta ár bætir hún um betur og bætir Tíbet við ferðaáætlunina.
Fjölmargir Íslendingar hafa ferðast með klúbbi Unnar gegnum tíðina og fáir sem hafa meiri reynslu af slíkum ferðum en hún. Unnur hefur þegar kynnt ferð næsta árs á vef sínum og þá ætlar hún að enda Kínatúrinn í Tíbet en þetta mun vera 35. skiptið sem hún leiðir hópa um Asíu.
Sjá má á ferðalýsingu á vef Unnar að um fjölbreytta ferð er að ræða og meðal annars bæði Shanghai og Beijing skoðaðar í þaula auk þvælings til Suzhou, Tongli, Hangzhou og Chengdu. Þetta virðist hin ágætasta ferð þó kostnaðurinn sé reyndar mikill en ferðin kostar manninn 720 þúsund krónur. Á móti er víða farið og gist á góðum hótelum með fullu fæði.








