Jómfrúarflug fyrstu farþegaþotunnar sem hönnuð er og framleidd í Kína mun að öllu óbreyttu taka á loft fyrsta sinni í lok næsta árs.
Töluverð leynd hvílir yfir framleiðslunni eins og gefur að skilja á miklum samkeppnismarkaði en þó er vitað að vélin sem framleidd er af Commercial Aircraft Corp. og ber heitið C919 verður 150 sæta vél. Hún er framleidd að hluta til úr sömu léttefnum og nýjustu vélar Boeing og Airbus.
Það verður að hneigja sig fyrir seiglu þeirra kínversku því fari vélin raunverulega í loftið í lok árs 2014 liðu aðeins fimm ár frá því að fyrirtækið var stofnað og þangað til fullbúin vél fer á loft. Það er makalaust lítill tími.
En það hjálpar auðvitað að þó engin sé vélin ennþá er þegar búið að panta 400 stykki. Og engum ætti að koma á óvart að 380 þeirra eru pantanir frá Kína.








