Á dauða okkar áttum við von, og höfum reyndar átt lengi, en ekki að Icelandair gripi ekki tækifærið til að monta sig af fínum árangri á erlendri grundu.
Vera má að við séum öll með alzheimer og lesblindu en hvergi höfum við rekist á innlenda fregn um að Icelandair hafi verið valið þriðja besta flugfélagið til skemmri flugferða af lesendum Telegraph í Bretlandi. Hoppa þó miðlar hérlendis yfirleitt upp til handa og fóta þegar Íslendingur svo mikið sem ropar erlendis.
Það er skrambi góður árangur því frá Bretlandi fljúga í allt næstum 300 flugfélög og samkeppnin því stífari en limir á tippasafninu við Hlemm.
Fyrir ofan Icelandair voru svissneska flugfélagið Swiss og í efsta sætinu hið gamalkunna British Airways. Fræðingar Telegraph, sem er með betri dagblöðum þegar kemur að ferðafréttum, telja sig vita að meiri sveigjanleiki BA ráði mestu fyrir utan einhverja almenna nostalgíu. Hjá Swiss er talið víst að liðlegheit valdi því að þeir taka annað sætið. Liðlegheit á borð við að bjóða algjörlega frítt að ferja skíði eða bretti með í flugi á veturna og golfsett á sumrin. Þeim verður þó orða vant þegar kemur að hinu litla Icelandair. Líklega sé ástæðan almennar vinsældir Íslands meðal Breta og margar ferðir.








