Þær eru allnokkrar stórfjölskyldurnar eða vin- og vinkonuhópar sem taka stefnuna erlendis einu sinni á vetri eða svo til að létta lund og ylja sál. Þá er ódýrast eigi fólk ekki eigin sumarvillu við suðurhöf að leigja sumarhús eða villu undir mannskapinn.

Fimmtíu þúsund króna afsláttur á villu Spánarferða nú um stundir

Fimmtíu þúsund króna afsláttur á villu Spánarferða nú um stundir. Mynd af vef Spánarferða

Fyrirtækið Spánarferðir vakti nokkra lukku hér fyrr á árinu þegar það auglýsti villu sína í Alicante til leigu fyrir áhugasama en fyrirtækið er íslenskt og mörgum þykir þægilegra og hættuminna að eiga viðskipti við Íslendinga.

Villan atarna er vel útilátin og tiltölulega vel staðsett og núna er vetrarleiguverð í gangi sem þýðir að leigjendur spara sér rúmlega 50 þúsund krónur frá hefðbundnu leiguverði. Nú kostar vikan „aðeins“ 199.990 krónur í stað 249.900 yfir sumartímann.

Ekkert gjafverð en séu sex til átta saman og leggja í púkk er þetta óvitlaust sé hugmyndin að hrista hópinn saman og styrkja tengslin.