Það vita þeir sem prófað hafa að það er enn meira líf í hinni lifandi New York en ella þá daga sem stærstu útsölur ársins hefjast og standa yfir. Nú er möguleiki að skjótast þangað, versla eins og þú eigir lífið að leysa og spara duglegan pening.
Engin eru hraðtilboðin hjá Icelandair þessa stundina svo við hjá Fararheill vitum af. Engu að síður finnum við nú, klukkan 13 þann 13. nóvember 2013, flug til New York þann 8. janúar og til baka þann 11.janúar fyrir 61.550 krónur. Þá sjaldan New York er í boði á tilboði hjá Icelandair er lægsta verð ekki mikið lægra en það.
Og útsölurnar í New York þann tíma er eins vænar og hægt er að óska sér. Pie in the Pod, Diesel, Saint-Laurent plús allar þessar stóru bjóða yfirleitt sjaldan minna en 50 prósent afslátt á janúarútsölum sínum og munar þar um minna fyrir tómleg íslensk veski.
Þessu tengt má vonandi gera ráð fyrir að nú þegar Icelandair hefur hafið flug til tveggja flugvalla við New York borg fari þeim fjölgandi hraðtilboðunum eftirleiðis.









