Það er víðar í heiminum þar sem stjórnvöld vilja skattleggja ferðamenn í meira mæli en verið hefur. Sérstakur ferðamannaskattur verður líklega að veruleika í Tælandi frá 1. janúar næstkomandi.
Slík skattlagning hefur ekki verið endanlega ákveðin en líkurnar þykja meiri en minni en fjöldi ferðamanna er slíkur að kostnaður vegna þjónustu þeirra vegna sem lendir á ríkinu er talinn og mikill.
Hér snýst aukinn skattur fyrst og fremst um að greiða niður þá milljarða sem ferðamenn eru að kosta heilbrigðisþjónustu í landinu en sem kunnugt er þeim er ferðast hafa um Tæland þarf yfirleitt alltaf að greiða gjald fyrir heimsóknir á sérstaka staði í landinu.
Áætlanir eru um að skatturinn verði 1.900 krónur á hvern ferðamann sem til landsins kemur plús 118 krónur fyrir hvern dag sem dvalist er í landinu. Engar stórupphæðir og þó. Írsk yfirvöld hættu við svipaða skattlagningu eftir mikil mótmæli ferðaþjónstuaðila fyrir ári síðan en þar töldu menn augljóst að þrjú til fjögur þúsund króna skattur á ferðafólk myndi fæla frá ferðalögum til Írlands.








