Ef við værum með tuttugu putta eða svo væri hægt að telja á fingrum þær greinar Fararheill þar sem við fárumst yfir þeim helbera dónaskap Wow Air og Icelandair að lista ekki á einfaldan hátt þær dagsetningar þar sem allra lægstu verð eru í boði á flugi.
Við köllum þetta dónaskap því þetta þýðir að fólk sem vill komast sem ódýrast milli a og b þarf að eyða til þess verulegum tíma, fletta fram og aftur og bera saman sjálft til að ganga úr skugga um hlutina.
Þetta er virðingarleysi við viðskiptavininn og nokkuð sem öll betri flugfélög heims hafa löngu fært til betri vegar. Skiptir engu hvort leitað er hjá SAS, Norwegian, easyJet, British Airways; alls staðar er hægt að sjá á augabragði hvenær er allra ódýrast að fljúga langt fram í tímann.
Þrátt fyrir að Wow Air hafi nú byggt sinn eigin glænýja vef bólar ekkert á þessari sjálfsögðu þjónustu þar. Þvert á móti tekur nú lengri stund en áður að fletta milli dagsetninga á þeim vef. Það segir nú æði margt um viðmótið hjá „flugfélagi fólksins.“ Sömuleiðis gangi öllum vel að finna allra ódýrasta flug með Icelandair án þess að leita að hinum ýmsu dagsetningum langt fram eftir kvöldi.
Þess vegna urðum við hissa þegar við rákumst á þetta hér á enskum vef Icelandair:
Þarna hefur einhver hjá Icelandair haft fyrir því að færa til bókar, væntanlega til hægðarauka fyrir útlendingana, nákvæmlega á hvaða dagsetningum bestu verð eru í boði á tilteknum ferðum. Vissulega hrákasmíð en samt sannarlega skref í áttina.
Getur verið að Icelandair geri sér grein fyrir því að erlendis þar sem fólk er vant góðri þjónustu gangi ekki upp að senda viðskiptavininn heila kvöldstund að leita uppi besta verð á ferðum hverju sinni?









