Það er vandlifað í henni veröld. Fararheill fær iðulega skammir frá lesendum fyrir að benda á ýmislegt sem betur má fara í rekstri Wow Air gagnvart viðskiptavinum og við erum fyrir löngu dottin út af vinsældalistum hjá starfsmönnum þar á bæ af sama tilefni.

Helmingsmunur á verði fyrir Breta til Íslands eða Íslendinga til Bretlands hjá Wow Air

Helmingsmunur á verði fyrir Breta til Íslands eða Íslendinga til Bretlands hjá Wow Air

En við erum svo skrýtin að slíkt eflir dáð og færir Aladdín í brjóst. Við erum líka svo skrýtin að halda að fyrirtæki sem standa og falla með þjónustu og framkomu við viðskiptavini ættu 24 klukkustundir, 365 daga á ári að hafa velferð og ánægju sömu viðskiptavina að leiðarljósi. Alveg sama hversu leiðinlegir viðskiptavinirnir eru eða hversu mikið mál er að hafa þá góða.

Við erum í raun að segja að fyrirtæki ættu að hætta að lofa sífellt upp í loðnar ermar og láta gjörðir tala sínu máli. Fólk er ekki fífl og röfl og tuð um dásemdir sem ekki standast gera bara illt verra til lengri tíma litið.

En kannski er fólk fífl og kannski ganga markaðs- og ímyndunarsérfræðingar út frá því sem gefnu. Ekki er langt síðan íslenskur stórkaupmaður var dæmdur fyrir stórfelld skattsvik og fjölmiðlar greindu frá því nokkuð skýrt og skorinort. Það var ekki tilviljun að rúmum sólarhring síðar buðu verslanir sama eiganda upp á safaríkustu lambakjötsútsölu seinni tíma.

Nóg um það. Það sem okkur leikur hugur á að vita er hvers vegna ferðaskrifstofa Wow Air getur boðið Bretum flug til og frá London, gistingu á sæmilegum hótelum í fjórar nætur með morgunverði og hent með Norðurljósaferð með fjórhjólajeppa í kaupbæti í vetur fyrir rétt rúmar 48 þúsund krónur á mann. Sértu Þjóðverji er fimm daga slík ferð í boði fyrir rúmar 61 þúsund krónur.

Til samanburðar finnur Fararheill ekkert betra en flug og gistingu í þrjár nætur á miðlungshóteli með morgunverði til London og heim aftur á vef Wow ferða frá 98.350 krónur. Við finnum reyndar þriggja daga ferð til Berlínar með gistingu á 65.900 krónur á mann í janúar en það er bara ein dagsetning í boði.

Með öðrum orðum; Wow Air er að bjóða enskum í fjórar nætur til Íslands fyrir helmingi lægra verð en Wow Air býður Íslendingum til London í þrjár nætur!!!  Það hljómar nú ekki alveg eins og þar sé um að ræða flugfélag fólksins eins og Wow kallar sig.

[price_table id=233900483]

* Miðað við miðgengi dagsins 1. nóvember 2013.