Samkvæmt listum sem hin ýmsu dagblöð og tímarit um heim allan hafa reglulega tekið saman um þá hundrað staði á jörðinni sem fólk ætti að heimsækja áður en yfir lýkur eru bæði Las Vegas og Hawaii-eyjur á flestum þeim listum. Nú er hreint ágæt ferð í boði frá Bretlandi sem sameinar þessa staði.

Eldheitar ástríður um borð í lúxusfleyi og Las Vegas og Hawaii í kaupbæti. Gæti verið miklu, miklu verra.

Eldheitar ástríður um borð í lúxusfleyi og Las Vegas og Hawaii í kaupbæti. Gæti verið miklu, miklu verra.

Þar er um að ræða flug frá Heathrow eða Gatwick í London þann 19. janúar næstkomandi beina leið til Las Vegas þar sem dvalið er þrjár nætur sem duga náttúrulega skammt til að komast yfir allt sem þar er í boði en þó skárra en ekkert.

Fjórða daginn er flugið tekið til Los Angeles og frá flugvellinum farið rakleitt að hafnarsvæðinu þar sem lúxusfleyið Star Princess bíður og leggur úr höfn um kvöldið.

Tekur þá við ljúf sigling um Kyrrahaf í fjóra sólarhringa áður en komið er til Honolulu og svo er stoppað næstu þrjá daga á hinum þremur stóru eyjum Hawaii; Kauai, Maui og Big Island áður en siglt verður áfram í fimm daga til mexíkóska bæjarins Enseneda. Vart þarf að taka fram að um borð er allur matur og snakk innifalið en þó ekki drykkir.

Næsta dag er komið til L.A. á nýjan leik og þaðan flogið næturflug til London.

Nokkrar slíkar ferðir eru í boði á næstu mánuðum en lægst er verð á þessari ákveðnu dagsetningu þegar þetta er skrifað. Farmiðinn á mann í slíka ferð miðað við tvo saman er ekki nema 272 þúsund krónur miðað við miðgengi dagsins. Jafnvel þó þar sé um inniklefa að ræða er það verð súpergott enda ferðin öll með fimm stjörnu yfirbragði. Auðvitað er málið að splæsa í klefa með svölum í slíkri ferð og þá hækkar miðaverð á mann upp í 355 þúsund krónur. Samt fjarska gott verð og sé rausnarleg rómantík í lofti eða sérstakt tilefni er verðið bara brandari.

Auðvitað bætist ofan á verð á ferð til og frá London en með rúmlega tveggja mánaða fyrirvara er hægt að verða sér úti um ferðir á lágmarksverði.

Nánar á vef Jetline Cruises hér.