Norræna flugfélagið SAS hefur sett töluvert magn af sætum á útsölu sem stendur yfir fram til þriðjudagsins 29. október. Í boði er flug á sértilboðskjörum til allra helstu borga Skandinavíu alveg fram til loka maí á næsta ári.

Forsjálni nú getur sparað góðar summur þegar nær líður næsta sumri

Forsjálni nú getur sparað góðar summur þegar nær líður næsta sumri

Þannig er lægsta verð til og frá Ósló á þessu tímabili 29.600 krónur og til Bergen er komist þann tíma allt niður í 36.500 krónur. Kaupmannahöfn lítið eitt dýrari á 38.500 og fram og aftur til Helsinki á 40.500 krónur.

Tilboð SAS eru kannski ekki til að missa hland yfir enda á köflum dýrari en hefðbundin fargjöld hjá Icelandair, Wow Air eða Primera Air sem einnig fljúga misreglulega til Norðurlandanna. Þó er lægsta verð vel til Osló vel undir lægsta verði hjá Icelandair þessa stundina en bæði flugfélög bjóða farþegum að taka farangur með án aukagjalda.

Langt á SAS þó í land að narta í hæla Norwegian sem reglulega flýgur milli Keflavíkur og Osló en jafnvel með töskugjaldi báðar leiðir er vel hægt að finna flug með þeim fram og aftur kringum 25 þúsund krónur.