Ferðaskrifstofan Wow Air býður áhugasömum að kaupa hótel og bílaleigubíla á vef sínum fyrir utan flugferðir auðvitað. En þó Fararheill geti ekki keppt í flugi þá getum við sannarlega keppt í hótelum og þar höfum við einfaldlega vinninginn.

Hótelbókunarvél Wow Air er Booking.com sem er góð og nýtileg á allan hátt en alls ekki sú sem best býður yfir línuna og hefur aldrei gert. Í þau fáu skipti sem Booking.com býður best þá mætir Fararheill því með stæl eins og sjá má

Með öðrum orðum þá getur margborgað sig að bóka hótel gegnum vef Fararheill en annars staðar. Og hana nú!

Örfá dæmi máli okkar til sönnunar:

Wow Air – Royal Garden Hotel í London 1.-8. október

bo

Fararheill.is – Royal Garden Hotel í London 1.-8. október

hb

Hér er munurinn litlar átta þúsund krónur sem auðvitað er enginn hellingur og þó. Það er eitthvað besta tímakaup sem þú finnur að eyða tveimur sekúndum og opna Fararheill.is í stað þess að bóka hótel með fluginu á vef Wow.

En skoðum fleiri dæmi sem segja sig sjálf.

Wow Air – Barbizon Palace í Amsterdam 9.-13. nóvember 2013

bo

Fararheill.is – Barbizon Palace í Amsterdam 9.-13. nóvember 2013

hb

Wow Air – First Hotel Vesterbro í Kaupmannahöfn 15.-20. desember 2013

bo

Fararheill.is – First Hotel Vesterbro í Kaupmannahöfn 15.-20. desember 2013

hb

Við gætum haldið svona áfram lengi en hýsingaraðilinn er farinn að kvarta og því látum við staðar numið. En ekki taka aðeins okkar orð fyrir. Prófið og sannreynið og sparið.

* Samanburður gerður kl. 20 þann 3. september 2013. Hótel valin af handahófi. Verð breytast ört og mikið en endilega látið á reyna sjálf og sannfærist.