Ár og dagur er síðan feitlagin tilboð bárust okkur Frónbúum frá innlendum ferðaskrifstofum beint á sólarstrendur í Alicante eða Malaga á Spáni. Ólíkt meintu frændfólki okkar í Noregi sem býðst að fljúga aðra leið til beggja staða þessa stundina fyrir rétt rúmar sjö þúsund krónur.

Jamm. Norska lággjaldaflugfélagið Norwegian er með ný þriðjudagstilboð í boði til miðnættis á fimmtudagskvöld eða meðan sæti fást til ýmissa áfangastaða næstu misserin. Þar á meðal eru Malaga og Alicante en létt tékk á vef Wow Air sem flýgur til Alicante leiðir í ljós að „besta verðið“ aðra leið til Alicante í byrjun september svo dæmi sé tekið kostar rúmlega 40 þúsund krónur plús vitaskuld farangursgjald og bókunargjald.

Einnig þarf að greiða fyrir farangur hjá Norwegian en öll önnur gjöld eru að öðru leyti innifalin ólíkt því sem gerist hjá Wow Air. Allt um málið hér.