Saga norræna flugfélagsins SAS hefur hvorki verið dans á rósum né fíflum undanfarin ár. Slæmir stjórnendur hafa aldrei náð tökum á rekstrinum og tap á tap ofan verið raunin. Ítrekað hafa einkarekin flugfélög reynt að bregða fæti fyrir þessu ríkisrekna flugfélagi sem er í sameiginlegri eigu Norðmanna, Dana og Svía.
En SAS heldur sínu striki og gott betur því í vikunni tilkynnti flugfélagið, sem sagt var á barmi þess að vera lagt niður fyrir tveimur mánuðum, að það hefði keypt fimmtán nýjar Airbus vélar sem verða strax árið 2015 komnar í þjónustu flugfélagsins.
Þetta eru góðar fréttir fyrir Frónbúa og sýnir skýran vilja stjórnvalda að halda flugfélaginu á lofti. Sem er tær snilld því alls staðar annars staðar eiga ríkisflugfélög undir högg að sækja.
SAS hefur flogið hingað til lands lengi vel og þó deila megi um hversu hagkvæm fargjöld þeir bjóða þá er staðreyndin sú að það er eina flugfélagið sem sýnt hefur vilja til að fljúga hingað til lands sama hvað gengur á.







