Kannski segir það einhverja sögu um lítið ímyndunarafl ferðaskipuleggjenda hjá innlendum ferðaskrifstofum að fram er komin agnarlítil norsk ferðaskrifstofa, Centec Travel, sem vill bjóða Íslendingum upp á vínferðir til Kanada.

Það er vel til fundið af þeirra hálfu enda öll samkeppni frábær og fjölbreytni jafnvel frábærari.

Auðvitað á að gera meira af því að bjóða landanum ferðir til Kanada eins og Fararheill hefur reyndar áður fjallað um. Vínrækt er tiltölulega stór iðnaður á stöku svæðum þessa mikla lands og í þessari tveggja vikna ferð Centec verða einir sjö vínbændur heimsóttir og dvalið nokkra stund hjá þremur þeirra. Þá er Niagara svæðið skoðað í þaula og fossarnir fallegu vitaskuld líka.

Ferð þeirra er skipulögð 22. október til 2. nóvember og dvalið á ágætum hótelum allan tímann. Verðið er rétt rúmar 200 þúsund á mann miðað við tvo saman.