Ef marka má prófessor í jarðfræði eru ekki eftir nema fimm til tíu ár áður en lág fargjöld flugfélaganna heyra sögunni til og mun dýrara verður að fljúga.
Þetta kemur fram í fróðlegu viðtali DV við Kristínu Völu Ragnarsdóttur, jarðfræðing, sem er þess fullviss að gengið sé allt of hart fram gegn náttúru heimsins og að stórar breytingar verði á mjög skömmum tíma. Þar á meðal dauði lágfargjaldaflugfélaga sem ekki eigi mörg ár eftir áður en kostnaður verður of mikill til að áfram verði hægt að bjóða þau ódýru fargjöld sem sést hafa undanfarin ár.
Ástæða þessa að mati Kristínar er sú staðreynd að olíuverð fer hækkandi á sama tíma og sífellt erfiðara og dýrara er að ná þeirri olíu sem eftir er í jörðu. Málmauðlindir jarðarinnar séu líka langt komnar og verð á þeim muni hækka verulega í kjölfarið á skömmum tíma.
Ritstjórn Fararheill er að nokkru leyti sammála þessu en tímaramminn verður líklega lengri en hún telur. Sjá má þegar borin eru saman flugfargjöld nú og fyrir fjórum til fimm árum bæði hér heima og erlendis að fargjöld fara stighækkandi. Mörg flugfélög hafa líka gengið eins langt og komist verður að láta farþega greiða fyrir þjónustu fyrir utan beint að taka gjald fyrir klósettferðir.
Það má því búast við að verð hækki áfram hjá flugfélögum heimsins og kannski ráð að eyða arfinum í ferðalög núna áður en við dettum aftur í gamla einokunartímann þegar Icelandair tók hvaða gjald sem þeim sýndist fyrir ferðir sínar ef vera skyldi að Kristín hefði rétt fyrir sér.







