Það er til mikillar fyrirmyndar að engir komast þingmenn lengur hjá því að skrá nákvæmlega hagnað og auð sinn í fyrirtækjum lögum samkvæmt. Fararheill hefur lengi viljað vita hvers virði flugleitarvefurinn Dohop er og nú þegar eigandinn er kominn á þing kemur brátt í ljós hvers virði hans hlutur er.
Dohop er hinn íslenski flug- og hótelleitarvefur sem margir þekkja og var einn þeirra fyrstu sem slíka þjónustu buðu á sínum tíma. Fararheill hefur ítrekað gert samanburð á þeim vef og öðrum sambærilegum enda merkilega mikill munur leitarvéla á milli og hefur sá íslenski að mestu leyti staðist afar vel allan samanburð við mun stærri miðla.
Eigandinn, Frosti Sigurjónsson, hefur staðið sig sköruglega í viðskiptalífinu og mun efalítið ekki missa svefn yfir lágum launum þingmanna eins og sumir.







