Skyldi það vera einskær tilviljun að Wow Air býður sín allra lægstu verð á flugi frá upphafi í kjölfar þess að Fararheill fjallar ítarlega um að fyrirtækið hafi ekki boðið ýkja merkilega hluti síðan samkeppnisaðilinn Iceland Express gaf upp öndina?
Svo merkilegt sem það er þá hefur Wow undanfarið boðið fargjöld aðra leið til London allt niður í 10.800 krónur. Þeir reyndar auglýsa 9.900 en enginn fer í loftið á því verði því bókunargjald þarf að greiða til viðbótar. Ergo; raunverð 10.800 á kjaft. Ætli þessi grein eða þessi hér hafi haft þar áhrif?
Í öllu falli gott verð og sannarlega kjörið tækifæri fyrir ferðaþyrsta að grípa þá gæs. London er svo kjörinn stökkpallur annað út í heim á eðlilegra verði en gerist og gengur hér. Þaðan er komist til Spánar og Ítalíu fyrir tíu þúsund í viðbót svo dæmi sé tekið og þannig verður flug þangað ódýrara gegnum London en beina leið héðan.
Meira af þessu takk!








