Viðamikil könnun CNN sýnir að almennir ferðavefir á borð við Fararheill.is eru þeir staðir þar sem ferðaþyrstir leita helst eftir áreiðanlegum upplýsingum um lönd, borgir og staði áður en haldið er af stað. Mun fleiri afla sér upplýsinga á slíkum vefmiðlum heldur en eftir öðrum leiðum.

Góðir ferðavefir eru númer eitt, tvö og þrjú þegar fólk leitar sér upplýsinga fyrir ferðalög.

Góðir ferðavefir eru númer eitt, tvö og þrjú þegar fólk leitar sér upplýsinga fyrir ferðalög.

Könnun þessi náði til yfir þrjú þúsund einstaklinga frá öllum heimshornum og viðkomandi spurðir út í hitt og þetta varðandi ferðir og ferðalög.

Í ljós kemur, ekki á óvart, að helsta áhyggjuefni fólks á ferðalögum er öryggi en 67 prósent sögðu það númer eitt, tvö og þrjú á ferðalögum.

Um 60 prósent sögðu verð á ferð skipta öllu máli við skipulagningu ferðalaga og 58 prósent sögðu forvitni reka sig áfram öðru fremur til fjarlægra landa.

Hitt vekur og athygli að ferðavefir er helsti staðurinn sem fólk leitar sér upplýsinga. Fyrst og fremst hjá vefmiðlum sem sérhæfa sig í ákveðnu landi, borg eða stað en þar rétt á eftir ferðavefir sem fjalla um allt er tengist ferðalögum vítt og breitt um heiminn. Slíkir vefir eru töluvert ofar hjá fólki miðað við þessa könnun en til að mynda Tripadvisor og slíkir þar sem aðalatriðið eru skoðanir annarra ferðamanna. Þá þykja ferðavefir almennt mun áreiðanlegri en upplýsingar er fást á miðlum flugfélaga og ferðaskrifstofa.