Tíðindi

Wales á pari í golfinu

  12/07/2010maí 17th, 2014No Comments

Þær eru ekki beint ódýrar lengur golfferðirnar til Skotlands eða Englands þegar pundið breska er svo gott sem búið að jarða litlu íslensku krónuna. Fátt bendir til að ferðaskrifstofurnar íslensku bjóði nýja ódýrari valkosti og því ekki um annað að ræða en finna slíkt á eigin spýtur.

Og ekki þarf langt að fara til að njóta alls þess besta sem íþróttin býður upp á; fyrsta flokks vellir í mildu og góðu veðri og það fyrir töluvert minni pening en gengur og gerist.

Wales er málið í golfinu. Þar bíða 176 átján holu vellir, margir hverjir stórkostlegir, en meðan þekktari vellir í Skotlandi og á Írlandi og Englandi kosta tíu þúsund og upp úr fyrir manninn einn hring er hægt að spila við ósköp svipaðar aðstæður í Wales fyrir fimm þúsund krónur hringinn.

Séu enn efasemdir er Wales staðurinn þar sem Ryder bikarkeppnin í golfi mun fara fram árið 2010.

Sjá allar upplýsingar um alla velli landsins hér.