Tíðindi

Könnun: Vitavonlausir vildarpunktar

  28/04/2009maí 11th, 2014No Comments

Samkvæmt óformlegri skoðanakönnun Fararheilla eru yfir 70 prósent aðspurðra annað hvort óánægðir eða mjög óánægðir með svokallaða vildarpunkta Icelandair. Hefur óánægjan vaxið töluvert síðan bankahrunið íslenska reið yfir enda sennilega aldrei meiri þörf en nú að nýta sér kosti slíkra afsláttarkorta.

Nema hvað Icelandair hefur lækkað virði þeirra meðan ferðir félagsins hækka jafnt og þétt og því nýtast slíkir punktar minna og minna þegar í raun þeir ættu að nýtast betur en áður.

Eru viðmælendur Fararheilla margir sammála um að vildarpunktarnir séu auglýsingabrella og ekki sé hægt að spara neinar stórar upphæðir. Þvert á móti kosti ósköp svipað að ferðast á vildarpunktum til Evrópu og það kostar að greiða með beinhörðum peningum. Það útskýrist af þeim gjöldum sem vildarpunktarnir ná ekki til; bensíngjöld, skattar og þjónustugjöld sem vel eru falin.

Punktarnir sem áttu að gilda beint móti hverri krónu upphaflega; einn punktur jafngilti einni krónu, hafa hrapað í verði um 40% og eru til að mynda fimm punktar nú aðeins þriggja krónu virði. Punktarnir fyrnast þar að auki reglulega og stór inneign er farin fyrir lítið á tveimur til þremur árum ef þeir eru ekki notaðir.

Þetta á sama tíma og snarlega hefur dregið úr möguleikum landans að ferðast og aldrei áður verið jafn brýnt að nýta sér „afsláttarmöguleika“ á borð við þá sem vildarpunktarnir áttu að standa fyrir.

Væri sennilega vænna upp á viðskiptavild Icelandair að gera að breyta þessum punktum í beinharðan afslátt en það er sennilega borin von nú þegar eini keppinauturinn, Iceland Express, er að mestu hætt að bjóða svokölluð lágfargjöld og mikil tengsl eru milli eigenda þessara tveggja flugfélaga.

Hafa má í huga að vænlegra er að nýta vildarpunkta til að greiða fyrir hótel en flug enda koma þá engir skattar ofan á þá upphæð. Sjái fólk fram á að punktar þess séu að fyrnast má gefa punktana góðgerðarsamtökum ellegar breyta þeim í dollara á síðunni Points.com og nota þá dollara til kaupa á vörum.

Vildarklúbbsíða Icelandair hér.

Heimasíða Points.com hér.