Það hlaut að koma að því að einhverjum dytti í hug að gera eitthvað annað við úr sér gengna olíuborpalla en sprengja þá í tætlur og leyfa ruslinu að ryðga á hafsbotni.

Ein hugmynda arkitekta um hvernig breyta megi úr sér gengnum olíuborpöllum í fyrirtaks hótel

Ein hugmynda arkitekta um hvernig breyta megi úr sér gengnum olíuborpöllum í fyrirtaks hótel

Arkitektarstofur bæði í Texas í Bandaríkjunum og Seoul í S.Kóreu hafa komið fram með hugmyndir um að breyta slíkum borpöllum í lúxushótel og hafa teikningar þegar litið dagsins ljós.

Margt jákvætt við hugmyndina, ekki síst að hún er mun vistvænni en nú er reyndin með gamla borpalla. En kannski þarf að endurskoða lúxusinn enda færri í dag sem lifa í lúxus en áður. Slík hótel gætu tekið við 300 gestum og öll herbergi hefðu vitaskuld útsýni til hafs og risastórt spilavíti og það jafnvel utan lögsögu ríkja svo ýmislegt annað varhugavert gæti átt sér stað.

Verra kannski að dvelja á slíku hóteli í Mexíkóflóa yfir fellibyljatímann…