Hætt er við að eins og einn starfsmaður Neytendastofu myndi hugsanlega rumska við fregnir um rúmlega átta prósenta verðbólgu á 30 daga tímabili í ákveðinni atvinnugrein.

Töluvert meiri verðbólga í utanlandsfluginu en annars staðar

Töluvert meiri verðbólga í utanlandsfluginu en annars staðar

Sú er raunin í verðkönnun ferðaleitarvélarinnar Dohop sem gerði úttekt á fargjöldum helstu flugfélaga til vinsælla áfangastaða þann 21. desember síðastliðin og aftur þann 22. janúar. Miðaverð yfir línuna hækkaði um 8,2 prósent þrátt fyrir lækkun á fargjöldum til Osló á því tímabili.

Það er dugleg hækkun yfir afskaplega rólegan tíma í ferðalögum og ekki hefur eldsneytisverð eða launakostnaður hækkað um átta prósent á þessu tímabili. Þvert á móti hefur eldsneytisverð á heimsmarkaði lækkað frá desember.

Úttekt Dohop sýnir þó líka aðra merkilega hluti. Wow Air er klárlega ódýrasta félagið í flugi til London og Kaupmannahafnar en í könnun Dohop er tekið tillit til farangurs- og bókunargjalds ólíkt því sem venjan er. Er það frábært framtak enda sjá þá viðskiptavinir hlutina svart á hvítu í stað græns á bleiku.

Annað athyglisvert er að lággjaldaflugfélagið easyJet er mun dýrara til London en Icelandair þó Bretarnir bjóði reyndar mun betur en íslenska félagið til Manchester. Þá er Icelandair líka dýrast í samanburði við SAS og Norwegian í flugi til Osló.