Þrjú lönd sérstaklega brunuðu hratt upp listann yfir forvitnilegustu nýju áfangastaðina á síðasta ári ef marka má lista flugleitarvefsins Skyscanner sem rekur eina 20 mismunandi vefi sem finna flug og ferðir og selja á netinu um heim allan. Öll þrjú löndin koma sennilega mörgum á óvart.

Eitt af þremur löndum heims sem ferðalangar skoða í vaxandi mæli er litli bróðir Tékklands; Slóvakía
Um er að ræða í fyrsta lagi Myanmar, áður Búrma, sem í fyrra fór að opnast fyrir erlent ferðafólk að einhverju ráði. Í annan stað Litháen sem þykir hafa margt til brunns að bera og í þriðja lagi Slóvakía.
Myanmar kemur hálft í hvoru á óvart. Hugmyndin um Tæland án þess fjöldatúrisma sem þar ríkir er vægast sagt heillandi og þar eru enn stór landsvæði ósnortin að mestu og verðlag almennt mjög lágt.
Á hinn bóginn er herforingjastjórnin illræmda enn við stjórn og menn þar sem maka krókinn á erlendum ferðalöngum og eins er Myanmar alls ekki undir það búið að fá yfir sig holskelfu ferðamanna. Hótel eru fá og lítil, meira að segja í stærstu borgum, og úti á landi er staðan miklu verri.
Litháen er eina landið í hópnum sem komist er til í beinu flugi frá Íslandi en Wow Air flýgur þangað og mun gera áfram. Hvers vegna það land hefur náð skyndilegri hylli er raunar vandséð og Skyscanner varpar ekki sérstöku ljósi á þær vinsældir. Þar er jú fjölmargt að sjá og skoða og á lágmarksverði miðað við Evrópu og kannski þarf ekki meira til.
Slóvakía sömuleiðis er óvæntur aðili en landið hefur auglýst grimmt og fyrir þá sem ekki þola fjöldatúrisma er það akkurat ekkert vandamál í Slóvakíu. Þá er þar enn ódýrara að gista og slaka en í Tékklandi en bæði lönd að mörgu leyti eins.







