Tíðindi

Loks hækka tollaheimildir ferðamanna

  03/01/2013október 17th, 2015No Comments

Frá og með 1. mars 2013 getur hver einstaklingur komið inn í landið með vörur að verðmæti 88 þúsund krónur í stað 65 þúsund króna áður án þess að þurfa að standa skil á nokkrum skatti. Á sama tíma hækkar hámarksverðmæti hvers einstaks hlutar sem ferðamaður má hafa með sér tollfrjálst úr 32 þúsund krónum í 44 þúsund krónur.

Þetta er fagnaðarefni fyrir alla jafnvel þó upphæðirnar sem um ræðir séu enn ekki ýkja merkilegar í neinum skilningi. Þetta er þó sannarlega skref í rétta átt enda hefur gjörgæslukrónan okkar haft í för með sér að sífellt minna hefur verið hægt að kaupa erlendis á sama tíma og tollamarkið hefur haldist óbreytt um árabil.

En nú hafa stjórnvöld aðeins lagfært stöðuna og sýnt með því heilbrigða sanngirni því ekki er íslensk verslun upp á marga fiska og samkeppni í landinu nánast engin.

Klapp á bak tollayfirvalda.