Tíðindi

Íslensku flugfélögin neðarlega á blaði

  26/07/2012No Comments

Icelandair er fjórða besta flugfélagið í Norður-Evrópu og Iceland Express það sjötta besta samkvæmt nýbirtum lista flugvefsins Skytraxx. Sem þætti kannski bærilegur árangur væri ekki fyrir þá sök að heildarfjöldi flugfélaga frá þessum hluta álfunnar eru sjö alls.

Finnair þykir besta flugfélagið á Norðurlöndum samkvæmt könnun meðal flugfarþega síðustu tíu mánuðina

Skytraxx byggir niðurstöður sínar á eigin rannsóknum en ekki síður á neytendum sem geta gefið flugfélögin einkunn fyrir hvert og eitt flug á vefnum og gefið þar álit sitt á 38 mismunandi þáttum í fluginu.

Niðurstöðurnar nú eiga við um árið 2011 og þar þykir Finnair fremst meðal jafningja, SAS kemur í öðru sætinu, Norwegian í því þriðja, Icelandair í fjórða, Estonian Air í fimmta og Iceland Express í sjötta. Í síðasta sætinu er sænska flugfélagið Sverigeflyg.

Ritstjórn Fararheill telur niðurstöðuna eðlilega þó deila megi um hvort SAS eða Norwegian sé betra flugfélag. Hið síðarnefnda er oftast mun ódýrara jafnvel þó greiða þurfi fyrir farangur.

Nánar hér.