Tíðindi

Svona sparar Fararheill þér stórfé

  23/11/2012janúar 30th, 2014No Comments

Við höfum ítrekað gegnum tíðina nauðsyn þess að fólk sem hyggst þvælast um veröldina að gera verðsamanburð milli hótelbókunarvéla. Það getur sparað tugþúsundir króna.

Þar sem góð vísa er sjaldan of oft kveðin er ráð að ítreka þetta einu sinni enn og sýna þér, lesandi góður, hvað hótelbókunarvél Fararheill.is er áberandi best allra.

Við tókum fimm vinsælustu hótel sem Íslendingar leita eftir samkvæmt lista leitarvefsins Dohop.is og bárum saman þrjár dagsetningar á fjórum hótelbókunarvefum. Bókunarvef Fararheill, Icelandair, Wow Air og Túrista en allir bjóða þessir mismunandi þjónustur.

Þó fimm hótel á þremur dagsetningum segi ekki alla söguna leikur enginn vafi á hver kemur best út. Ekki aðeins er Fararheill með bestu verð heldur og er Fararheill eina vélin sem finnur öll hótelin á öllum tímum. En ekki taka okkar orð fyrir því. Prófið sjálf ef áhugi er að sjá heiminn fyrir lægra verð en ella.

* Allar bókunarvélarnar keyrðar samtímis milli kl. 14 og 15 þann 23. nóvember 2012. Ekki er tekið tillit til gæða eða stærðar herbergja heldur eingöngu tekið lægsta verð á viðkomandi dagsetningu. Tvær bókunarvélanna sýna ekki verð í íslenskum krónum. Í þeim tilfellum var reiknað yfir í krónur miðað við miðgengi krónu á sama andartaki. Hafa skal í huga að verð breytast ört. Ófeimin að prófa önnur hótel eða aðrar dagsetningar.

  • Samanburður á fimm hótelum milli fjögurra hótelbókunarvéla á dagsetningunni 4.-5. janúar 2013
  • Samanburður á fimm hótelum milli fjögurra hótelbókunarvéla á dagsetningunni 19.-20. mars 2013
  • Samanburður á fimm hótelum milli fjögurra hótelbókunarvéla á dagsetningunni 26.-27. júlí 2013