Hvort sem fólk labbar um í háklassaborgum eða afdala krummaskuðum mjög víða í heiminum er orðið næsta víst að geta komist á netið og það oftar en ekki frítt með öllu á kaffihúsum og krám. Sömuleiðis er komist frítt á netið á mörgum torgum borga þar sem svokallaðir heitir reitir finnast og fjölgar þeim stöðum hratt svo ekki sé minnst á verslunarmiðstöðvar þar sem slíkt er undantekningarlítið frítt.

Bókasöfn, kaffihús, verslunarmiðstöðvar, miðbæjartorg og bakarí eru meðal staða hérlendis sem bjóða frítt internet. En alþjóðaflugvöllurinn okkar? Hreint ekki.
En suður í Keflavík á eina alþjóðaflugvelli Íslendinga, þeim sama og er valinn Besti flugvöllur Evrópu ár eftir ár, er engu slíku fyrir að fara. Þar skaltu borga og það ýkja duglega í þokkabót.
Hér er átt við þá sem brúka fartölvur og hafa tíma að eyða eins og reyndar er oftast raunin á flugvöllum heimsins. En eins og annað þar innandyra kostar vandamál, vesen og nokkurn pening að komast á netið og vafra.
Í fyrsta lagi þarf viðkomandi að eiga greiðslukort og í öðru lagi greiða 490 krónur fyrir klukkustundar vafstur. Fyrir utan að þeir sem kjósa að nota ekki kreditkort eru strax útaf borðinu er kostnaðurinn heldur hár.
490 krónur er helmingur þess sem það kostar að greiða fyrir pung og heilan mánuð í áskrift hjá símafyrirtækinu Nova svo dæmi sé tekið. Það er líka sama upphæð og þú greiðir fyrir netaðgang á O´Hare flugvelli í Chicago í Bandaríkjunum nema þar dugar sá peningur í sólarhring.
Til langs tíma fannst varla flugvöllur neins staðar sem bauð frítt net en það hefur gjörbreyst og nú er í raun vandfundinn sá flugvöllur eða fyrirtæki innan flugstöðvarsvæðisins sem ekki býður slíkt frítt. Víða í Bandaríkjunum þykir slíkt orðið sjálfsagt þó sumir staðir bjóði reyndar aðeins tímabundinn frían aðgang.
Þannig eru fríar 45 mínútur á netinu á alþjóðaflugvelli Los Angeles. LAX, en eftir það verður að greiða. Sama er uppi á teningnum á Charles de Gaulle flugvelli í París. Á Kastrup þarf að greiða fyrir nema viðkomandi skrái sig í velunnaraklúbb Kastrup flugvallar en þá er netaðgangur frír. Það er hægt að gera á flugvellinum sjálfum og er óháð þjóðerni. Skráning í klúbbinn kostar ekkert.
Óháð kostnaði er skondið að sjá hvað starfsfólk Leifsstöðvar flokkar sem einfalt eins og sjá má í meðfylgjandi leiðbeiningum fyrir þá sem ætla sér að tengjast netinu í fyrsta skipti og ekki síður að svo virðist sem engir noti aðra vafra en Internet Explorer.
Einfalt að byrja!
Þú gætir þurft að fylgja neðangreindum skrefum:
Smelltu á Start – í vinstra horninu á skjánum.
Smelltu á Control Panel.
Veldu Network Connections.
Farðu á Wireless Network Connection, hægri smelltu og veldu Properties í valmyndinni.
Smelltu á Wireless Networks flipann. „hotspot“ ætti að birtast þar ef þú smellir á View Available Networks hnappinn. Til að tengjast smellirðu tvisvar á„Hotspot“. Lokaðu glugganum.
Hægri smelltu á Wireless Network Connection og smelltu á Properties. Smelltu svo á General flipanna og finndu Internet Protocol (TCP / IP) í listanum og smelltu þar á Properties.
Veldu Obtain an IP Address Automatically og Obtain DNS Server Address Automatically og smelltu síðan á OK. Lokaðu glugganum.
Opna Internet Explorer vefvafrann og smelltu á Tools.
Veldu Internet Options úr listanum og smelltu á Connections flipann.
Smelltu á LAN Settings og vertu viss um að einungis sé hakað við kassann Bypass Proxy Server for Local Addresses. Smelltu á OK til að staðfesta. Lokaðu glugganum.
Endurræstu tölvuna þína.
Nákvæmar upplýsingar um net í Leifsstöð á hinni opinberu heimasíðu hér.






