Tíðindi

Klósett í flugvélum sýklaverksmiðjur

  14/11/2012No Comments

Magaveiki, niðurgangur, nóró veiran eða inflúensa í sérstöku uppáhaldi? Ef ekki mælast fróðir til þess að þú látir það allra helst vera að þvælast mikið á klósettið í farþegaflugvélum.

Allt virðist hreint og fínt en það getur blekkt. Klósettsvæði um borð í farþegavélum eru gróðrarsvæði sýkla og baktería

Fullyrðir sérfræðingur í dagblaðinu USA Today að óvíða sé auðveldara að verða sér úti um viðbjóðslegar bakteríur og veirur en einmitt um borð í farþegavélum og þá sérstaklega á klósettum og mælist kallinn til þess að sleppa alfarið klósettferðum um borð í flugvélum.

Sjálfur hefur fræðingurinn fundið ýmis konar vírusa og annan viðbjóð við kannanir í hinum ýmsu farþegavélum. Fyrir utan klósettið er matarbakkinn yfirleitt þakinn miður geðslegum bakteríum að hans sögn og sömuleiðis er læsingin á skápum fyrir ofan farþega oft á tíðum vel þakin bakteríum af ýmsum toga.