Rúm vika er síðan íslenski flugleitarvefurinn Dohop.is kom endurnýjaður úr lagningu með sportlegra útlit og nokkrar tæknilegar breytingar sem eiga að gera áhugasömum kleift að finna allra hagstæðustu eða hentugustu flugferðirnar, hótelin eða bílaleigubílana.
Það er ekkert leyndarmál að ritstjórn Fararheill hefur hingað til gefið Dohop hina bestu einkunn. Ítrekað gerum við samanburð og þó ekki birtum við þá alla hefur hinn íslenski alltaf staðið sig mjög vel og skilað oftar en ekki betra verði en aðrir mun stærri og öflugari samkeppnisvefir.
Nú hins vegar eru blikur á lofti.
Hinn endurnærði Dohop er fyrst og fremst flottari nú en áður. Hann var alltaf einfaldur og það er hann áfram. En flottur og einfaldur eru útlitseinkenni og segja ekkert til um vélina undir húddinu. Er meiri sprengikraftur hér en annars staðar?
Fararheill bar Dohop saman við tvo aðra stóra og vinsæla flugleitarvefi sem báðir gefa upp kostnað í íslenskum krónum í fimm ferðum á mismunandi dagsetningum völdum af handahófi. Allar tóku stikkprufurnar til ferða til og frá Íslandi aðra leið eða báðar vel fram eftir næsta ári.
Eins og sjá má stendur Dohop sig almennt vel í samanburðinum í fjórum skiptum af fimm en er algjörlega út úr kú í það fimmta. Heilt yfir bauð Dohop ódýrara flug einu sinni en fjórum sinnum finnur Dohop aðeins dýrari fargjöld en samkeppnisaðilarnir. Aldrei munaði þó meira en þrjú þúsund krónum ef frá er talið flugið til Tenerife sem Dohop finnur ekki ódýrar en á 702 þúsund krónur. Það er alveg út í Hróa Hött og allt hans gengi með tölu.
Ljóst má vera að ef þetta væri eðlilegt fargjald til Tenerife væru fleiri á þeirri eyju að rækta fíkjutré en taka móti ferðafólki. Og reyndar finnur enginn þessara þriggja leitarvéla flug til Tenerife undir 388 þúsund krónur báðar leiðir umræddar dagsetningar á mann..
Fararheill finnur hins vegar auðveldlega flug fram og til baka til London með Icelandair þessar sömu dagsetningar fyrir 40.740 á mann og til Tenerife og til London aftur þennan tíma fyrir 37 þúsund krónur með Ryanair. Þannig reyndist eigin leit 310 þúsund ódýrari en ódýrasta leitarvélin og 640 þúsund krónum ódýrara en hjá Dohop.
Vera kann að þetta sé undantekningin sem sannar regluna en án þess að Fararheill.is hafi kannað það sérstaklega virðist vera sem svo að Dohop hafi ekki lengur aðgang að flugferðum Ryanair svo dæmi sé tekið. Þó ýmislegt misjafnt megi segja um það flugfélag býður það oft á tíðum hagstæðustu flugfargjöldin.
Dohop til bóta má þó benda á að vefurinn leitar einni uppi allar ferðir kringum þær dagsetningar sem leitað er eftir hverju sinni og bendir sérstaklega á ef að ódýrara flug er í boði. Það er æði frábært ef dagsetningar eru ekki niðurnegldar ekki síst vegna þess að sum flugfélög lista ekki sérstaklega sín bestu verð og því þarf að leita lon og don að þeim. Dohop benti í einu tilviki á að 62 þúsund krónur spöruðust við að bóka flug daginn fyrir og daginn eftir þær dagsetningar sem valdar voru. Það hefði verið ágætur sparnaður.
Sömuleiðis getur verið fróðlegt fyrir áhugasama að skoða liðinn Dohop Away sem finnst neðst til hægri á heimasíðunni. Þar má sjá í fljótu bragði bestu verð sem fundist hafa til ýmissa staða undanfarnar vikur og mánuði. Með slíku tæki er hægt, þegar fram líða stundir, að sjá hvenær vænlegast er að kaupa flugfar til ákveðins staðar.
Heilt yfir virðist vera sem Dohop.is sé að gefa aðeins eftir. Í fyrri könnunum hefur vefurinn sá oftar fundið ódýrustu fargjöldin en aðrir en ekki í þessu tilfelli.







