Tíðindi

Massífur blekkingarleikur Wow Air

  02/11/2012desember 19th, 2013No Comments

Annaðhvort hafa forráðamenn Wow Air ráðið til sín afar óupplýst auglýsingafólk ellegar það er meðvituð ákvörðun að reyna að blekkja neytendur í landinu. Lægstu verð sem félagið auglýsir til margra áfangastaða sinna næsta sumarið er hvergi að finna og ódýrustu fargjöldin mun hærri en gefið er til kynna.

Hin dásamlega borg Zürich er í boði með Wow Air næsta sumar en fargjaldið aðra leið er 20 þúsund krónum dýrara en félagið auglýsir

Engar þarf orðabækur til að vita að slíkt flokkast undir blekkingar og það æði alvarlegar enda hefur ritstjórn Fararheill.is sent Neytendastofu erindi vegna þessa.

Wow auglýsir grimmt í dag vetrar- og sumaráætlun sína sem er aðeins breytt frá því áður en Wow Air keypti Iceland Express fyrir skömmu. Þar eru jafnframt auglýst allra ódýrustu fargjöldin til allra borga sem flogið verður til næsta vor og sumar.

Ef frá eru taldar þær þrjár borgir, Berlín, Kaupmannahöfn og London, sem félagið flýgur langoftast til er ekkert að marka uppgefin verð í auglýsingum Wow til allra hinna staðanna sem í boði eru.

Fór Fararheill yfir þá alla í morgun eða sama dag og auglýsingin birtist í blöðum en þar er hvergi minnst á takmarkað sætaframboð á ódýrustu fargjöldunum. Jafnvel þó svo væri er afar ólíklegt að hvert og eitt einasta þeirra hafi verið selt fyrir klukkan ellefu í morgun þegar ritstjórn lauk sinni úttekt. Hana má sjá hér að neðan:

* Um er að ræða fargjald aðra leiðina út með sköttum og öðrum greiðslum.

  • Lágmarksverð til Dusseldorf í Þýskalandi samkvæmt auglýsingu Wow er 12.900  krónur.
    • Ekkert flug finnst á því verði á vef Wow Air næsta sumarið. Lægsta verð þar er 16.900 krónur á ýmsum dagsetningum eða 4.000 krónum dýrara.
  • Lágmarksverð til Stuttgart í Þýskalandi samkvæmt auglýsingu Wow er 12.900  krónur.
    • Ekkert flug finnst á því verði á vef Wow Air næsta sumarið. Lægsta verð þar er 17.758 krónur á nokkrum dagsetningum eða 4.858 krónum dýrara.
  • Lágmarksverð til Alicante á Spáni samkvæmt auglýsingu Wow er 14.900  krónur.
    • Ekkert flug finnst á því verði á vef Wow Air næsta sumarið. Lægsta verð þar er 22.900 krónur á einni dagsetningu eða 8.000 krónum dýrara.
  • Lágmarksverð til Amsterdam í Hollandi samkvæmt auglýsingu Wow er 12.900  krónur.
    • Ekkert flug finnst á því verði á vef Wow Air næsta sumarið. Lægsta verð þar er 19.291 króna á nokkrum dagsetningum eða 6.391 krónu dýrara.
  • Lágmarksverð til Lyon í Frakklandi samkvæmt auglýsingu Wow er 14.900  krónur.
    • Ekkert flug finnst á því verði á vef Wow Air næsta sumarið. Lægsta verð þar er 16.900 krónur á nokkrum dagsetningum eða 2.000 krónum dýrara.
  • Lágmarksverð til Zürich í Sviss samkvæmt auglýsingu Wow er 14.900  krónur.
    • Ekkert flug finnst á því verði á vef Wow Air næsta sumarið. Lægsta verð þar er 34.900 krónur á mörgum dagsetningum eða 20.000 krónum dýrara.
  • Lágmarksverð til Mílanó á Ítalíu samkvæmt auglýsingu Wow er 12.900  krónur.
    • Ekkert flug finnst á því verði á vef Wow Air næsta sumarið. Lægsta verð þar er 25.291 krónur á nokkrum dagsetningum eða 12.391 krónu dýrara.
  • Lágmarksverð til Parísar í Frakklandi samkvæmt auglýsingu Wow er 14.900  krónur.
    • Ekkert flug finnst á því verði á vef Wow Air næsta sumarið. Lægsta verð þar er 16.900 krónur á stöku dagsetningum eða 2.000 krónum dýrara.

Hugðist ritstjórn gera sams konar úttekt á þremur öðrum borgum sem Wow hefur þegar auglýst næsta sumarið. En Vilníus í Litháen, Frankfurt í Þýskalandi eða Barcelóna á Spáni finnast ekki í bókunarvél félagsins þegar þetta er skrifað.

Til að bæta gráu ofan á svart er 900 króna bókunargjald ekki innifalið í uppgefnu verði og því má hækka öll ofangreind verð um þá upphæð hvern fluglegg.

* Úttekt gerð milli 08 og 11 föstudaginn 2. nóvember 2012.