Daginn eftir að Fararheill skýrði frá því að alvarlegar bilanir hefðu komið upp í einhverjum þeim vélum er Wow Air notar varð bilun þess valdandi að lenda þurfti vél félagsins á leið til Keflavíkur frá Berlín í Noregi.
Morgunblaðið segir að fljótt hafi tekist að gera við bilunina en flugmenn vélarinnar fengu tilkynningu um að loftþrýstingur í farrými hefði fallið og þótti ekki forsvaranlegt annað en lenda.
Veður reyndist svo ekki hagstætt þegar viðgerð var lokið og varð að kalla til aðra vél þar sem áhöfn Wow Air í Noregi var þá komin framyfir leyfilegan vinnutíma sinn.
Þetta þýddi aftur að farþegar félagsins í Keflavík á leið til London þurftu að bíða og fóru ekki af stað fyrr en klukkan tvö aðfararnótt laugardags en áætluð brottför var 16.20 daginn áður.






