Við erum sennilega öll sek um að hugsa það sama um miðjan desembermánuð. Hvers vegna í ósköpunum er ég að standa í þessu jólastreði ár eftir ár. En hvernig væri að breyta raunverulega út af venjunni fyrir þessi jólin og drepa nokkra daga með besta mögulega hætti?

Óvíða í Evrópu er ódýrara að versla en í hinni frábæru Lissabon í Portúgal. Þar væri hægt að gera jólainnkaup meðan lúxusfleyið Azure stoppar þar dagsstund í ferð Iglu Cruises. Mynd Miguel Correia
Ritstjórn Fararheill vill meina að fátt sé nú betur til þess fallið en ellefu daga lúxussigling á algjöru botnverði í byrjun desember. Í þokkabót komið heim í tæka tíð til að henda sér endurnærð í jólastressið og það með nettan sólarlit í kinnum.
Ferðaþjónustufyrirtækið Iglu Cruise í Bretlandi býður þessa stundina upp á ellefu daga siglingu með lúxusfleyinu Azura frá Southampton sem leið liggur til Casablanca í Marokkó, þaðan til Spánar þar sem stoppað verður í Malaga og Cadiz auk Gibraltar áður en haldið verður til Lissabon í Portúgal og endað einn dag í spænsku borginni Vigo á vesturströnd Spánar áður en haldið er til Southampton á nýjan leik.
Fyrir utan að leiðalýsingin er bæði sérstök og skemmtileg er rúsínan í þessum pylsuenda sú að prísinn á þessari ferð hefur lækkað um helming. Slík ellefu daga ferð með öllu inniföldu nema drykkjum kostar nú 98 þúsund krónur á mann í gluggalausri káetu. Það þýðir að fyrir innan við 200 þúsund krónur plús 60 þúsund krónur í flug til og frá Íslandi hvílir þú og makinn lúin bein og nýtur lífsins í þægilegu veðri meðan allir heimavið eru bæði fullir af stressi og kvefi og öðrum þeim yndislegheitum sem íslenskur desembermánuður færir landsmönnum.
Ekki heldur er dapurlegt að hoppa beint í verslanir í þeim borgum sem stoppað er í og versla jólagjafir í leiðinni. Koma svo heim með allt sitt á glansandi tæru.
Tilboð Iglu Cruise hér.






