Innan tíðar mun Iceland Express tilkynna um farangursgjöld á allan farangur viðskiptavina sinna en Fararheill.is hefur fengið staðfest að slíkt verði gert með einhverjum fyrirvara og verði ekki afturvirkt.

Innan tíðar mun Iceland Express taka töskugjald af öllum farangri flugfarþega sinna. Ekki er þó ljóst hvað hátt gjaldið verður
Það er virðingarvert af fyrirtækinu að gera hlutina með þessum hætti ólíkt samkeppnisaðilanum Wow Air sem fyrirvaralaust hóf upptöku slíkra gjalda í lok ágúst. Gjöldin per se ekki nógu há til að fólk hætti við ferðir en engu að síður er um nokkrar upphæðir að ræða.
Í tilfelli Wow Air kostar það hjón eða par 11.600 krónur að fara með sitthvora töskuna fram og tilbaka og með það í huga hljóma öll tilboð nokkuð hjákátlega fyrir vikið. Fyrir upptöku gjaldsins fékkst flugfar á 14.900 með einni tösku en nú bætist töskugjald við sem getur í tilfellum verið jafnhátt fargjaldinu.
Ekki liggur fyrir hvað Iceland Express hyggst krefjast í gjald af hverri tösku en væntanlega verður það á svipuðum nótum og hjá Wow Air.
Gjaldið mun þó ekki verða afturvirkt. Það er að segja að þeir sem nú kaupa flugfar með félaginu fram í tímann þurfa ekki að eiga á hættu að þurfa að greiða töskugjaldið. Þeir geta þess vegna verið forsjálir og bókað nú áður en Iceland Express fastsetur gjald sitt.






