Næsta sumar komast fölbleikir Íslendingar þráðbeint með flugfélaginu easyJet til Manchester og Edinborgar í viðbót við ferðir félagsins til Luton London.
Færist nú enn meira fjör í leika hérlendis en þetta eykur vitanlega enn meira samkeppni í flugi til og frá landinu.
Ekki aðeins bætast þessar borgir við úrval easyJet frá Keflavík heldur fjölgar félagið ferðum sínum til og frá London líka. Ekki er sagt útilokað að fleiri nýir áfangastaðir verði kynntir áður en langt um líður.
Aukin samkeppni er frábær og ekki skemmir fyrir að til Manchester flýgur Icelandair nú fyrir og þar eitt um hituna. Gera má fastlega ráð fyrir að samkeppni easyJet muni lækka verð Icelandair.
Þegar er hægt að bóka ferðirnar með easyJet á vef félagsins en flug hefst þó ekki fyrr en í mars á næsta ári.
Heimasíða easyJet hér.






