Tíðindi

Nagli á haus með Sankti Pétursborg

  06/09/2012No Comments

Innan við tvær vikur eru síðan Icelandair tilkynnti um beint flug til St.Pétursborgar í Rússlandi og þar virðist flugfélagið aldeilis hafa hitt naglann á hausinn. Þó enn sé tæpt ár í fyrsta flug eru velflest dýrari farrými uppseld að verða næsta sumarið.

Dágóðar bókanir í dýrustu sætin hjá Icelandair milli Sankti Pétursborgar og Keflavíkur næsta sumar

Þetta má sjá með að fletta á bókunarvef Icelandair í júní og júlí á næsta ári. Tiltekið er á bókunarvélinni hversu mörg sæti eru eftir í hverju farrými í hvert flug og nákvæmlega hversu mörg séu þau færri en fimm eftir.

Og einu gildir hvernig flakkað er með dagsetningar að víða eru aðeins örfá sæti laus á Saga Class farrými eða Economy comfort sem er næsta farrými fyrir neðan. Nóg virðist þó af sætum í ódýrari farrýmunum.

Icelandair hefur þarna aldeilis hitt naglann á höfuðið því flugfélög græða langmest á þeim er bóka dýrustu sætin.