Ritstjórn Fararheill rekur ekki minni til þess að nokkru sinni hafi íslenskar ferðaskrifstofur verið með útsölur eins og velflest önnur fyrirtæki sem vörur og þjónustu selja. Útsölur á ferðum er þó normið erlendis.
Þannig er til dæmis útsala hjá ferðaskrifstofunni Cruisenation sem sérhæfir sig í siglingum hvers konar. Þar eru nú allt að 70 prósenta afsláttur á völdum Miðjarðarhafssiglingum nú í haust og príma mál að grípa svoleiðis í þokkabót við tilboðsflug til London og málið dautt. Flug frá London er nefninlega innifalið í mörgum ferðanna.
Til mikillar eftirbreytni er að ferðaskrifstofan listar nákvæmlega hversu mörg pláss eru eftir á tilboðsverðinu og því þarf enginn að eyða tíma að leita að einhverju sem ekki er til lengur.
Sem dæmi um tilboðin sem enn eru í gildi þegar þetta er skrifað má nefna fjögurra nátta siglingu á 17 þúsund krónur eða sex nátta ferð fyrir 58 þúsund krónur á mann með flugi til og frá London.
Berið það saman við siglingar í boði hérlendis sem eru vandfundnar undir tvö til þrjú hundruð þúsund krónum á mann.
* Verð miðast við miðgengi krónu gagnvart bresku pundi kl. 21 þann 6.september 2012







