Tíðindi

Ný borgartilboð Icelandair

  04/09/2012janúar 12th, 2014No Comments

Til hádegis miðvikudaginn 5. september geta áhugasamir pantað ferð til fjögurra áfangastaða Icelandair á hraðtilboðsverði. Um er að ræða borgirnar Stavanger í Noregi, Toronto í Kanada, Seattle í Bandaríkjunum og gömlu góðu Glasgowí Skotlandi.

Fæst flug til evrópsku borganna Glasgow og Stavanger aðra leiðina fyrir 14.900 krónur meðal flugið aðra leið til Toronto kostar 27.900 og önnur leiðin til Seattle 36.900.

Ferðatími til allra staða er til desember ef frá er talin Toronto en fara verður þá ferð í síðasta lagi 4. nóvember. Glasgow er hægt að heimsækja á tilboði til 13. desember, Stavangur til 16. desember og Seattle til 14. desember.

Um er að ræða almenningsfarrými með sköttum og gjöldum og smáa letrið er á við biblíuna að lengd.

Heimasíða Icelandair hér.