Tíðindi

Formúlutilboð til London

  04/09/2012desember 16th, 2013No Comments

Hraðtilboð Icelandair eru velþekkt en formúlutilboð Wow Air eru nýjung. Aldrei áður hefur ritstjórn fengið tilboð inn um rafræna lúguna klukkan 21:26 og hefur til 23:59 til að kaupa far til London á lágu verði.

Wow Air er að færa sig upp á skaftið með tilboðum sínum og lítill er tíminn til umhugsunar

Reyndar er tilboðið sjálft fyrirtak eða 9.900 krónur aðra leiðina til London plús vitaskuld farangursgjald því ekki vill ritstjórn spóka sig um í sömu fötunum á Oxford stræti marga daga í röð. Tilboðið gildir um flug fram til 10. desember og því tilvalið sem jólagjafaferð að negla eina slíka ferð.

En tæplega þriggja klukkustunda fyrirvari er tómt rugl. Íslendingurinn er almennt ekki slefandi á skjáinn á tölvunni öll kvöld bíðandi eftir tilboðum lon og don. Jafnvel þó par, hjón eða fjölskylda fái tilboðið beint í æð klukkan 21:26 þarf að ræða slíkt og leita eftir hentugum dagsetningum og kanna með frí úr vinnu, pössun fyrir börnin og svo framvegis.