Eigi alls fyrir löngu gerði Fararheill úttekt á tveimur safaríkum ferðum sem í boði eru fyrir landsmenn til Indlands í haust og vetur. Í ljós kemur að ein ferðaskrifstofa til viðbótar býður líka Indlandsferðir sem bragð er af.

Þarf að hugsa þetta eitthvað nú þegar hitamælirinn á klakanum er smám saman að detta niður í frostmark? Ein ströndin í Kerala á Indlandi
Er það ferðaskrifstofan Sunnuferðir sem býður tvær slíkar ferðir þennan veturinn. Annars vegar sautján daga ævintýralega menningarferð eins og það er kallað þann 9. október um Indland og Nepal. Hins vegar fjórtán daga ferð um Kerala hérað þann 15.nóvember.
Segja má að sama sé hvar stigið sé niður fæti á Indlandinu stóra. Alls staðar er ofgnótt að sjá og ekki síður upplifa því heimamenn eru almennt afar hrifnir af ferðafólki.
Fyrri ferðin er æði spennandi þar sem farið er um merkar borgir og staði frá Gömlu- og Nýju Delí, til Agra og Varanasi. Ekki síður fróðlegt er stopp í Kathmandu í Nepal með hinn stórfenglega Himalaja fjallgarð í bakgrunni.
Síðari ferðin er meira dúllerí og dekur. Kerala hérað er fallegt og fjölbreytt og fer rúmlega helmingur tímans til skoðunar hér og þar en síðustu dagana getur fólk nýtt á fínni ströndinni í afslöppun.
Ævintýraferðin
PLÚS: Það er dauður maður sem ekki fær vatn í munn við að lesa ferðalýsinguna. Hér er víða farið, margt skoðað og nokkrum ævintýrum hent inn aukalega til gamans. Stór plús í þokkabót fyrir að taka inn Nepal í leiðinni en það land er ekki síður merkilegt heimsóknar þó stutt sé þar stoppið.
MÍNUS: Þó prógrammið sé gott og bæði sé um íslenskan og innlendan fararstjóra að ræða þá er þessi ferð æði stíf. Víst er hún fjölbreytt en á móti kemur að enginn er frídagurinn og langar setur í rútum milli langra göngutúra í miklum hitum tekur toll á öllum. Fararheill telur afar hæpið að fólk komi til Keflavíkur „endurnærð“ eins og lofað er í ferðalýsingunni.
Ferðin um Kerala
PLÚS: Enginn verður svikinn af dvöl í Kerala héraðinu og það er kannski til marks um fjölbreytileika og stærð Indlands að hér er auðveldlega hægt að dvelja mánuðum saman án þess að komast yfir allt það sem þetta eina hérað býður upp á í mat, drykk, ævintýrum og sjónarspilum. Kerala er auk þess að margra mati besta strandhérað Indlands og allt annar stíll á ströndum hér en á ströndum bakpokaferðalanga í nágrannahéraðinu Goa.
MÍNUS: Þó auðvelt sé að fara gullna þríhyrninginn er erfiðara að fara gullna meðalveginn. Þessi ferð er alltof stutt eða aðeins tvær vikur og þar af tveir í raun aðeins í flug frá Íslandi og heim aftur. Indland á skilið meira og betra en það.






