Tíðindi

Tvær spennandi Indlandsferðir í boði í haust

  01/08/2012desember 22nd, 2013No Comments

Kulsæknir bleiknefjar á Íslandinu góða gætu gert ýmislegt vitlausara en pakka í töskur og halda til Indlands. Þetta haustið eru allavega tvær slíkar ferðir í boði með traustum ferðaskrifstofum og allra best að þátttaka í báðum er takmörkuð við 20 til 40 sálir eða eina góða rútu.

Ferðirnar sem um ræðir eiga þó ekki annað sameiginlegt að vera til Indlands og báðar í boði á svipuðum tíma í október.

Annars vegar býður Úrval Útsýn upp á sautján daga ferð frá 17. október til 3. nóvember. Um er að ræða góðan skoðunartúr um norðurhluta landsins auk stopps í sól og sandi í Góa. Herlegheitin kosta þó skildinginn eða rúma 1,1 milljón króna fyrir tvo saman. Það gerir rúmar 33 þúsund krónur á mann á dag alla ferðina.

Tæpum 400 þúsund krónum ódýrari en mun styttri er sérstök ellefu nátta jógaferð ferðaskrifstofunnar Trans-Atlantic. Í hana er brottför þann 6. október. Sú ferð fyrir tvo kostar sem nemur 778 þúsund krónum eða rúmar 35 þúsund krónur á mann á dag.

Ferð Úrval Útsýn

Plús: Í flesta staði fín ferð og alls ekki of löng. Stoppað á ýmsum forvitnilegum stöðum svo skoðunarglaðir geta vel við unað. Kamel- og fílaferðir, fín hótel allan tímann og endað á nokkrum dögum í flæðarmálinu í Góa áður en haldið er heim. Þetta er dekur- og dúlluferð.

Mínus: Þó auglýst sé sautján daga ferð eru lappir ferðalanga ekki á indverskri grundu nema í fimmtán þegar búið er að draga frá ferðatíma til og frá Íslandi. Og farið er yfir of margt á of skömmum tíma hér. Engum dettur í hug að einn til tvær dagar í risastórum og stórmerkum borgum dugi til að sefa forvitna ferðamenn. Taj Mahal ein saman tekur heilan dag ef vel á að vera svo dæmi sé tekið. Fararheill reiknast til að fyrir utan flug til og frá Indlandi taki ferðir, flug, lest og rútur á Indlandi, vart minna en 24 stundir í heildina. Þannig eru í raun þrír dagar af sautján alls sem fara í ferðalög í ferðalaginu. Það er heldur mikið.


View Ferð Úrval Útsýn in a larger map

Ferð Trans-Atlantic

Plús: Allt annars konar ferð en Úrval Útsýn býður upp á. Jóga er hér í hávegum haft og menning og kúltúr lands og borga kynntur sérstaklega. Ferðir milli staða ekki of langar og prógramm ekki of stíft.

Mínus: Ferðin sem slík er of stutt. Eins og fyrri ferðin breytist þessi ellefu daga ferð í níu daga þegar búið er að ferðast til og frá Íslandi. Níu dagar, jafnvel þó um afslöppunarferð sé að ræða, er allt of stutt til að kynnast landi og þjóð. Þetta er fullstressandi fyrir jógaferð.


View Ferð Trans-Atlantic in a larger map