Sem betur fer eru íslensku flugfélögin ekki jafn óhagganleg og hið írska Ryanair. Enn einu sinni er það flugfélag milli tanna á fólki og nú fyrir að krefjast 45 þúsund króna aukagreiðslu af farþega sem gleymdi að prenta út fjóra farseðla sína.

Suzy McLeod bloggaði um kröfu Ryanair um greiðslu tæpra tólf þúsund króna aukagjald þar sem hún gleymdi að prenta út farseðil sinn. Vakti það mikla athygli.
Vissulega hefur verð á pappír hækkað undanfarin ár en 11.250 krónur fyrir eitt einasta A4 blað er þó verulega fyrir ofan það sem gengur.
Það er upphæðin sem bresk kona sem ferðaðist með Ryanair frá Alicante til Bristol á Englandi þurfti að greiða til að komast heim á nýjan leik með fjölskyldu sína þegar í ljós kom að hún hafði ekki prentað út farseðla sína eins og flugfélagið fer fram á. Var konan engu að síður með bókunina á pdf skjali í símanum sínum en það breytti engu.
Hefur málið vakið mikla athygli í Bretlandi og aukna andúð á starfsháttum Ryanair.
Flest flugfélög og nánast öll lágfargjaldaflugfélögin fara þess á leit við farþega sína að prenta út farseðil sinn að lokinni bókun og er svo sem ekki óeðlileg krafa.
Hins vegar er það sjaldan eða aldrei vandamál þó fólk gleymi því þar sem bókunin er skráð í gagnagrunn og birtist á skjám starfsmanna þegar innritun fer fram. Strangt til tekið breytir það engu fyrir staffið hvort útprentunin gleymist eður ei því vart er um meiri vinnu að ræða fyrir starfsmanninn.
Engu að síður stendur Ryanair hart á sínu og hver sá sem mætir á flugvöllinn án útprentunar fer ekki um borð fyrr en greitt hefur verið fyrir útprentunargjald.
Þess má geta að velflest hótel erlendis bjóða upp á tölvuaðstöðu og oftar en ekki með möguleika til prentunar. Sömuleiðis eru starfsmenn á öllum hótelum yfirleitt reiðubúnir að prenta út fyrir gesti sína sé þess óskað.







