Tíðindi

Nú er tíminn til að rjúka til Kína

  18/08/2012No Comments

Kína og heim aftur fyrir 92 þúsund rammíslenskar krónur? Já takk.

SAS býður nokkur eðaltilboð fram til 28.ágúst og gildistíminn er í allan vetur

Það er raunverulega í boði nú með skandinavíska flugfélaginu SAS að fljúga frá Keflavík til Bejing og heim aftur með millilendingu í Noregi eða Svíþjóð fyrir þetta verð.

Er þetta hluti af tilboðspakka SAS en fram til 28.ágúst eru í boði feitir afslættir á hefðbundnum fargjöldum með flugfélaginu. Er þetta kjörin leið til að fljúga alla leið til Asíu með einu og sama flugfélaginu jafnvel þó um millilendingu sé að ræða. Í versta falli er einfalt að bóka farangurinn alla leiðina en ekki þvælast með hann milli flugvalla eins og líkur eru á annars staðar með öðrum flugfélögum.

Best af öllu er að tilboðin eru í boði í allan vetur. Það er bæði sérstakt og frábært enda venjan að takmarka mögulegan ferðatíma þegar slík tilboð eru auglýst.

Heimasíða SAS hér.