Tíðindi

Barnaníðingar um borð

  15/08/2012No Comments

Tvívegis undanfarna daga hafa tvö flugfélög í Ástralíu sætt ámæli fyrir þær ráðstafanir að færa fullorðna karlmenn úr sætum sínum í flugvélum þar sem þeir sátu við hlið barna sem ferðast voru án foreldra sinna.

Er verið að gefa of mikið í skyn með að meina öllum karlmönnum að sitja við hlið ókunnugra barna um borð í flugvélum?

Er þetta talsvert hitamál í þarlendum fjölmiðlum enda hafa báðir karlmennirnir sem um ræðir gert mál úr og annar íhugar að krefjast skaðabóta.

Annar mannanna, hjúkrunarfræðingur að mennt, sem ferðaðist með flugfélaginu Quantas segir sig hafa verið auðmýktan og stimplaðan ósjálfrátt sem barnaníðing af samfarþegum sínum í flugi með félaginu þegar flugfreyjur kröfðust þess að hann færði sig um sæti rétt fyrir brottför þar sem hann sat við hlið tíu ára stúlku sem var ein á ferð.

Nokkrum dögum áður varð slökkviliðsmaður fyrir sömu reynslu í vél Virgin Australia þar sem hann fékk sæti við hlið tveggja ungra drengja sem einnig voru á ferð án foreldra. Var þeim manni gert að skipta um sæti við konu um borð sem ekki þekkti neitt til drengjanna.

Í ljós kemur að bæði flugfélög hafa sem reglu að fullorðnir karlmenn sitji ekki við hlið barna og ungmenna sem séu ein á ferð og stafa deilurnar af því að þar með er strax verið að gefa ýmislegt í skyn og það ansi alvarlegt.

Svo alvarlegt í raun að maður sem lögsótti British Airways fyrir að hafa verið færður gegn vilja af sömu ástæðu fyrir tveimur árum  síðan vann mál sitt fyrir dómstólum. Þurfti flugfélagið að greiða honum nokkrar skaðabætur fyrir að flokka hann öðruvísi en aðra farþega. Í kjölfarið greip BA til þess ráðs að stúka af sérstakan hluta véla sinni fyrir börn sem ein voru á ferð.

Fararheill er ekki kunnugt um slík vandamál hjá flugfélögum hérlendis en sé fólki kunnugt um slíkt má gjarnan hafa samband við ritstjórn.